Til þess að undirstrika baráttu Hollywood gegn kvikmyndarányrkju gerði Twentieth Century Fox sérstakar öryggisráðstafanir á heimsfrumsýningu nýjustu myndar Bruce Willis „Live Free or Die Hard“ í París í gærkvöldi.
Bandarísk framleiðslufyrirtæki eru rög við að sýna myndir áður en þær koma út og því var passað upp á að enginn væri inn í bíóhúsinu sem forráðamenn myndarinnar treystu ekki fullkomlega að sögn talsmanns Fox France.
Willis var mun afslappaðri á frumsýningunni. Hann sagðist hafa ákveðið að taka þátt í fjórðu Die Hard mynd sinni vegna þess hve fjörugt handritið er. Aldurinn sagði hann gera sig enn ákveðnari í að framkvæma áhættuatriðin sjálfur. Hann rotaðist nokkrum sinnum, sem hann sagði vera áhugaverða tilfinningu á 52. aldursári.