París Hilton hefur verið flutt af sjúkradeild fangelsisins í miðborg Los Angeles og er aftur komin í kvennafangelsið þar sem hún byrjaði afplánun sína fyrir rúmri viku.
Ekki liggur ljóst fyrir hvers vegna hún var sett á sjúkradeildina, en haft hefur verið eftir einum lækna hennar að hún hafi ekki tekið tiltekin lyf fyrst eftir að afplánunin hófst.
Geðlæknar eru ekki sagðir hafa botnað neitt í því hvers vegna andlegt ástand hennar snarversnaði.