Meðlimir Bifhjólasamtaka Lýðveldisins Sniglanna standa nú fyrir mikilli mótorhjólasýningu á Akureyri. Stofnað hefur verið mótorhjólasafnið Tían sem samanstendur að mestu leyti af þeim 50 bifhjólum sem voru í eigu Heiðars Jóhannssonar snigils númer tíu sem lést í bifhjólaslysi fyrir tæpu ári síðan. Bifhjólamenna hafa fjölmennt á sýninguna sem stendur fyrir utan húsnæði Toyota á Akureyri í blíðskapar veðri og stendur hún til klukkan sjö í kvöld.