Skemmtiferðaskipinu Queen Elizabeth 2 verður breytt í hótel en emírinn af Dubai greindi frá því í dag að skipið hafi verið keypt á 100 milljónir Bandaríkjadala. Verður skipinu komið fyrir við strendur Dubai og þar opnað hótel árið 2009. Skemmtiferðaskipið kom hingað til lands í síðustu viku.