Samtök bandarískra kvengagnrýnenda munu á næstunni tilkynna eigin lista yfir 100 bestu myndir allra tíma. Hugmyndin kviknaði í kjölfar þess að á svipuðum lista Bandarísku kvikmyndastofnunarinnar eru aðeins 4,5 prósent myndanna eftir kvenleikstjóra. Myndir eftir karlleikstjóra verða ekki útilokaðar en líkur eru á að hlutur kvenleikstjóra verði töluvert meiri en á lista kvikmyndastofnunarinnar. Listinn verður kynntur hinn 25. júní.