Michael Lohan segir dóttur sína hafa þegið leiðsögn Guðs

Lindsay Lohan í maí sl.
Lindsay Lohan í maí sl. AP

Lindsay Lohan hefur þegið leiðsögn Guðs, að því er faðir hennar, Michael, segir. Telur hann að hún sé á batavegi eftir að hafa farið reglulega til kirkju. Lindsay dvelur nú á meðferðarheimilinu Promises í Malibu, í áfengismeðferð. Þá kveðst Michael ánægður með að Lindsay skuli hafa aflýst fyrirhugaðri veislu í tilefni 21 árs afmælis síns.

Michael sagði í viðtali í sjónvarpsþættinum The Insider: „Lindsay hefur ratað á rétta braut vegna þess að hún hefur farið reglulega til kirkju, og það er góðs viti.“

Feðginin hafa verið skilin að skiptum síðan Michael var fundinn sekur um líkamsárás fyrir tveim árum.

Lindsay hafði áformað að halda mikla afmælisveislu á næturklúbbnum PURE í Las Vegas, en á mánudaginn aflýsti hún veislunni.

Lindsay fór í meðferð í annað sinn á árinu eftir að hún var handtekin fyrir ölvunarakstur í síðasta mánuði. Lögreglan fann „umtalsvert magn“ af kókaíni í bílnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir