Góð stemmning var á tónleikum hljómsveitarinnar Hjálma og Megasar á Nasa í nótt en þar flutti Megast lög af plötum, sem væntanlegar eru í haust. KK aðstoðaði einnig við flutning laganna og var því fjölmennt á sviðinu. Megas áformar frekara tónleikahald í haust, þar á meðal stórtónleika í Laugardalshöll.