Eddie Murphy er barnsfaðir Mel B, er haft eftir talsmanni fyrrum kryddstúlkunnar á vefsíðu tímaritsins People.
Murphy var fyrr í mánuðinum skikkaður í blóðprufu til að komast að því hvort hann sé faðir rúmlega tveggja mánaða gamallar dóttur Mel B, sem ber nafnið Angel Iris Murphy Brown.
Murphy og Mel voru kærustupar um tíma á síðasta ári en Murphy hefur hingað til þó ekki vilja kannast við að vera barnsfaðir hennar. Nú er hinsvegar komið að honum að taka ábyrgð á gjörðum sínum.