Um 1800 gítarleikarar komu saman nálægt Stuttgart í Þýskalandi um helgina og léku saman Deep Purple-lagið Smoke on the Water í tilefni af því að aldarfjórðungur er liðinn frá því lagið kom út á plötu. Gítarhetjurnar komust með þessu í Heimsmetabók Guinness því aldrei áður hefur jafn stór gítarhljómsveit leikið rokklag.