Bresku söngkonurnar fimm, sem eitt skipuðu hópinn Kryddstúlkurnar, hafa boðað til blaðamannafundar síðar í dag þar sem búist er við að þær boði endurkomu sína í tónlistarheiminn. Búist er við að Kryddstúlkurnar komi fram á tónleikum um helgina, sem haldnir eru í minningu Díönu prinsessu, og breskir fjölmiðlar segja að sönghópurinn hyggi einnig á tónleikaferðalag um heiminn síðar á þessu ári.
Kryddstúlkurnar fimm, þær Victoria Beckham, Melanie Chisholm, Geri Halliwell, Emma Bunton og Melanie Brown, létu taka af sér myndir í Lundúnum í morgun en þær verða allar viðstaddar blaðamannafundinn.