George Michael hyggst rita afhjúpandi ritverk um eiturlyfjanotkun sína og þau skipti er hann komst í kast við lögin. Söngvarinn segist ætla að ljóstra upp öllu því er snertir þær handtökur sem hann var viðriðinn í Bretlandi og Bandaríkjunum.
Í ævisögunni verður kafli sem kallast "Vörtur og allur fjandinn" og mun fjalla um það er Michael var gripinn glóðvolgur í lostafullum og ósæmilegum leik inni á almenningssalerni í Beverly Hills. Bókin mun einnig fjalla um svokallað "kynlífs-frelsi" söngvarans.
Fyrr á árinu kvaðst Michael eiga það kannabisreykingum að þakka að hann héldist heill á geði. "Ég myndi hiklaust segja að þetta væru frábær lyf, en augljóslega ekki heilsusamleg," fullyrti hann.
Búist er við því að bókin seljist eins og heitar lummur. Ekki fylgir þó sögunni hvort heitar lummur hafi í raun nokkurn tímann verið seldar.