Gleðiganga samkynhneigðra stendur nú sem hæst í Lundúnum og þátttakendur láta ekkert á sig fá þótt tilraunir hafi verið gerðar til hryðjuverkaárása í borginni í gær og í Glasgow í Skotlandi í dag. Að venju eru búningar í gleðigönginni afar skrautlegir og virðist ímyndunaraflinu lítil takmörk sett.