Tilkynnt var í dag að von er á fjölgun í bresku konungsfjölskyldunni í desember en að sögn Buckinghamhallar á Sophie, eiginkona Játvarðs prins, von á sér þá. Fyrir eiga þau hjón dótturina Louise, sem fæddist árið 2003.
Játvarður, sem er yngsti sonur Elísabetar Englandsdrottningar, og Sophie, bera titlana jarlinn og hertogaynjan af Wessex. Í tilkynningu hallarinnar segir, að þau hjón séu afar glöð. Það sama er sagt um Elísabetu og Filippus prins en barnið verður áttunda barnabarn þeirra.