Orðrómur er um að bandarísku kvikmyndaleikararnir Matt Damon, Adriel Brody og Gary Sinese muni leika í væntanlegri kvikmynd í Star Trek myndaflokknum. Þetta hefur ekki verið staðfest og heldur ekki, að til standi að taka hluta myndarinnar upp á Íslandi.
J.J. Abrams mun leikstýra myndinni. Handritshöfundarnir Alex Kurtzman og Roberto Orci hafa sagt, að tilkynnt verði síðar í þessum mánuði hverjir leiki í myndinni.
Myndin verður sú 11. í Star Trek myndaröðinni og áformað er að frumsýna hana á næsta ári.