Sir Salman Rushdie hefur samþykkt að veita konu sinni Padma Lakshmi skilnað einungis tveim vikum eftir að hann var aðlaður af Englandsdrottningu. Lakshmi sem er 36 ára og 24 árum yngri en eiginmaður hennar er fyrirsæta og sjónvarpskynnir í Bandaríkjunum mun samkvæmt umboðsmanni Rushdies hafa farið fram á skilnaðinn.
Sky fréttastofan breska segir að orðrómur um að hjónabandið væri í andaslitrunum hefði verið á kreiki vikum saman.