Pamela Anderson hélt upp á fertugsafmæli sitt með fyrrum eiginmanni sínum Tommy Lee um helgina. Fyrrum Strandvarðastjarnan og Tommy skemmtu sér á Planet Hollywood hótelinu í Los Angeles fram á rauðan morgunn. Einn partýgesta sagði Pamelu hafa skemmt sér vel og hún liti alls ekki út fyrir að vera orðin fertug.