Paris Hilton er komin heim til Bandaríkjanna eftir að hafa farið í frí til Hawaii að lokinni afplánun. Hilton sendir aðdáendum sínum þessi skilaboð á vefsíðu sinni: akstur og áfengisneysla eiga ekki samleið.
Hilton var látin laus úr fangelsi í síðustu viku eftir að hafa eytt 23 dögum á bak við lás og slá fyrir að aka undir áhrifum áfengis og brjóta skilorð.
Hún bloggar á vef sínum um framtíð sína en að hennar sögn hefur síðasti mánuður veitt henni innblástur til þess að halda áfram að sinna spennandi verkefnum sem eru í farvatninu. Lofar hún því að greina aðdáendum sínum frá hugðarefnum sínum á næstunni.