Söngkonan Britney Spears réðist á ljósmyndara með regnhlíf því hún var að undirbúa sig fyrir kvikmyndahlutverk. Spears missti stjórn á skapi sínu í febrúar þegar fyrrverandi eiginmaður hennar, Kevin Federline, krafðist tímabundins forræðis yfir drengjum þeirra og neitaði henni um að hitta þá. Hún réðist á ljósmyndara en lúskraði einnig á bíl sem stóð fyrir utan hús Federlines. Hún segist hafa lifað sig of mikið inn í hlutverk í kvikmynd sem hún undirbjó sig fyrir.
Britney hefur nú sent út bréf þess efnis að hún hafi verið að undirbúa sig fyrir hlutverk þar sem eiginmaður persónunnar stendur sig ekki í stykkinu. Hún lauk bréfi sínu þannig: „Því miður fékk ég ekki hlutverkið, Mér þykir leitt að hafa lifað mig of mikið inn í hlutverkið! Britney.“