Hin frægu kynni Hughs Grants af gleðikonu nokkurri í Hollywood verða meginuppistaðan í fyrirhugaðri kvikmynd.
Myndin segir söguna af skyndikynnum leikarans breska af fyrrverandi vændisstúlkunni Divine Brown á Hollywood Sunset Boulevard. Sagnir herma að Divine Brown muni þéna milljónir á kvikmyndafærslunni, en hún hefur nú þegar grætt heilmikið á ævintýrinu stutta hér um árið. "Allir heillast af því sem gerðist og vilja vita ástæðu þess að ég gerði þetta," segir hún.
Hugh Grant var í tygjum við fyrirsætuna þokkafullu Elizabeth Hurley er atvikið átti sér stað. Slitnaði upp úr sambandi þeirra í kjölfar ástarfundar leikarans vinalega og gleðikonunnar guðdómlegu.