Ljósmyndari var fundinn sekur í dag fyrir að áreita Heather Mills-McCartney þegar hann greip í hana til þess að taka mynd af henni. Mill-McCartney segist yfir sig ánægð yfir niðurstöðu dómsins.
Talsmaður Mills-McCartney segir hana vona að ljósmyndarar sem elta hana á röndum dag hvern muni nú láta hana og dóttur hennar í friði.