Kvikmyndin Harry Potter og Fönixreglan náði fimmta sæti yfir tekjuhæstu kvikmyndir sögunnar á frumsýningardegi en myndin var frumsýnd í gær. Tekjur af sýningu myndarinnar námu 44,2 milljónum Bandaríkjadala. Tekjurnar náðu þó ekki frumsýningartekjum þriðju myndarinnar um Köngulóarmanninn, sem námu 59,8 milljónir dala nú í vor.