Heimildaþáttur um 12 mánuði í ævi rithöfundar Harry Potter bókanna, JK Rowling, verður sýnd á sjónvarpstöðinni ITV1 í haust. Þátturinn mun veita innsýn í líf rithöfundarins og sýna atriði frá því þegar hún kláraði sjöundu og síðustu bók sína um galdrastrákinn Harry Potter.
Rowling ljóstraði því nýlega upp að hún hafi verið alsæl en um leið niðurbrotin þegar hún skrifaði síðust orð sögunnar sem kemur út 21. júlí næstkomandi.