Fangelsisvist París Hilton verður rannsökuð vegna fullyrðinga um að hún hafi fengið sérstaka meðferð í fangelsinu. Athugað verður hvort fullyrðingar fangelsisvarða reynist réttar um að Hilton-erfinginn hafi fengið farsíma á meðan aðrir fangar þurftu að bíða í röð eftir peningasíma.
Einnig verður athugað hvort Hilton hafi fengið nýjan fangabúning í stað þess að fá notaðan, eins og aðrir fangar.