Verslunin Nexus við Hverfisgötu hefur opnað nýja heimasíðu, www.harrypotter.is, helgaða útkomu nýjustu bókar J.K. Rowling, Harry Potter and the Deathly Hallows.
Nexus mun hefja sölu á bókinni kl. 23 föstudagskvöldið 20. júlí og er gert ráð fyrir mikilli aðsókn og fjöri í búðinni enda fjöldi aðdáenda Potters sem vilja komast sem fyrst yfir bókina. Eigendur Nexus hvetja fólk til að mæta í búningum og skemmta sér og öðrum í röðinni sem gæti myndast meðan beðið er eftir bókinni.
Nexus stendur einnig fyrir teiknikeppni í tilefni útgáfunnar og eru veitt verðlaun í þremur aldursflokkum. Allar upplýsingar um keppnina má finna á hinni nýju heimasíðu.