Tuttugu og fjögurra ára belgísk kona á nú von á tveimur pörum af tvíburum en slíkt mun vera afar sjaldgæft og gerast að jafnaði í einni af hverjum 65 milljónum meðgangna. Konan Angelique og eiginmaður hennar Laurence, eiga fyrir tvö börn og munu Angelique hafa tekið frjósemislyf þar sem þeim þótti þriðja barnið láta bíða eftir sér. Þetta kemur fram á fréttavef Jyllands-Posten.