Jennifer Lopez borðar ruslfæði

Jennifer Lopez.
Jennifer Lopez. Reuters

Söng- og leikkonan Jennifer Lopez hefur viðurkennt að eiga það til að borða ruslfæði þegar hún er í fríi, en ítrekar þó að hún láti það eiga sig þegar hún er að kynna ný verkefni. "Þegar ég þarf að kynna nýja kvikmynd eða nýja plötu legg ég töluvert á mig til þess að halda mér í formi þá mánuðina," sagði Lopez í samtali við tímaritið Cosmopolitan. "En ég fæ mér stundum að borða á McDonald's þess á milli, og ég á það til að hreyfa mig ekki neitt í lengri tíma. Þótt ég reyni oftast að borða hollan mat á ég það líka til að fá mér súkkulaðibitakökur, ég borða bara ekki allan pakkann," sagði söngkonan. "Ef ég tek eftir því að ég er að fitna passa ég mig betur á því hvað ég borða en ég geri aldrei neitt dramatískt. Ég borða bara aðeins minna og hreyfi mig aðeins meira."

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú er ráð að hugsa um framtíðina og íhuga hvar þú vilt vera eftir fimm ár. Settu þér markmið, skrifaðu þau niður og hafðu fyrir augunum alla daga.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Carla Kovach
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú er ráð að hugsa um framtíðina og íhuga hvar þú vilt vera eftir fimm ár. Settu þér markmið, skrifaðu þau niður og hafðu fyrir augunum alla daga.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Carla Kovach