Tvær myndir eru nú í vinnslu um kínverska einræðisherrann Mao Zedong. Önnur heitir Chasing the Dragon og er byggð á bók fréttamannsins Roy Rowan sem var í Kína þegar kommúnistar náðu völdum. Sú mynd er framleidd af Robert De Niro, en óvíst er hvort hann leiki í henni eða leikstýri. Hin myndin er Challenging Heaven sem Steven North framleiðir og fullyrðir North að sú mynd verði mjög jákvæð í garð Maó formanns en Chasing the Dragon verður öllu gagnrýnni á störf hans. Svo er bara að bíða og sjá hvort báðar myndirnar verði að raunveruleika því ekki er óalgengt í þessari stöðu að sú mynd sem er lengur í startholunum detti upp fyrir.