Listahátíðinni LungA lýkur á Seyðisfirði í kvöld með stórtónleikum. Fyrr í dag sýndu þátttakendur í hátíðinni, sem voru um 130 talsins, afrakstur vinnu seinustu viku. Troðfullt var í íþróttahúsi Seyðisfjarðar á uppskeruhátíðinni. Um 70 erlendir þátttakendur tóku þátt í hátíðinni sem haldin var í áttunda sinn.