Heimildamyndin Líf í limbó verður sýnd í ríkissjónvarpinu í næstu viku. Myndin fjallar um líf palestínskra flóttamanna í Líbanon en í aðalhlutverki eru börn og barnabörn flóttamanna sem komu til Líbanons fyrir nærri sextíu árum og þekkja því ekkert annað heimili en flóttamannabúðirnar. Hrafnhildur Gunnarsdóttir leikstýrir myndinni ásamt Ericu Jong, sem er af gyðingaættum, og Tinu Nacacche frá Líberíu. Myndin var í áratug í vinnslu þar sem leikstýrurnar þrjár fylgdu eftir fjórum flóttamannabörnum og einum líbönskum dreng frá barnæsku til unglingsára.
Sjá nánar í Morgunblaðinu í dag.