Sjöunda og síðasta bókin um galdrastrákinn Harry Potter, Harry Potter and the Deathly Hallows, kom út sl. laugardag. Árni Matthíasson, blaðamaður Morgunblaðsins, skrifar umsögn um bókina í Morgunblaðinu í dag og segir hana þá skemmtilegustu af bókunum sjö, enda takist höfundinum, J. K. Rowling, vel upp við að blanda saman óttalegum viðburðum og skondnum uppákomum.
Í bókinni eru líka grimmileg átök sem ná hámarki í lokaorrustu þar sem þeir takast á Harry Potter og Voldemort hinn illi, en að sögn Árna falla tugir í valinn í síðustu bókinni, þar á meðal persónur sem fylgt hafa okkur í gegnum bækurnar allar.
Hægt er að lesa ritdóminn í Morgunblaðinu í dag.