Marc Anthony, eiginmaður söng- og leikkonunnar Jennifer Lopez, var næstum hættur við að leika í nýrri mynd sem skartar þeim tveimur í aðalhlutverkum. Ástæðan var sú að honum fannst of erfitt að leika í senum þar sem hann þurfti að þykjast beita hana ofbeldi. Anthony segir að þeim hafi báðum þótt mjög erfitt að leika í sumum senum í myndinni, sem heitir El Cantante, en hafi þó komist í gegnum það á endanum. "Allir vinir mínir sem eru leikarar vöruðu mig við og sögðu mér að þessar senur yrðu okkur mjög erfiðar. Það varð til þess að ég hætti næstum því við að leika í myndinni. Það kom líka á daginn að við vorum mjög þreytt, bæði andlega og líkamlega, þegar tökum lauk," sagði Anthony.
Annars hefur Lopez lýst því yfir að barneignir myndu treysta hjónaband þeirra enn frekar í sessi. "Ég og Marc sáum kvikmyndina Children of Men nýlega. Boðskapur þeirrar myndar er að ef maður eignast engin börn er engin von til framtíðar," sagði Lopez.