Hundur af Chihuahua kyni er hetja í augu eigenda sinna eftir að hann bjargaði barni frá biti skröltorms. Hundurinn Zoey stökk fyrir skröltorminn er hann gerði sig líklegan til að bíta barnabarn eiganda Zoey.
Beit skröltormurinn Zoey og var hundinum vart hugað líf. En dýralæknum tókst að bjarga Zoey og er hundurinn hetja heimilisins eftir atburðinn.