Leikarinn Tom Cruise kom gestum í veislu sem haldin var til heiðurs þeim David og Victoria Beckham á óvart með því að sýna mikil tilþrif á dansgólfinu. Tók eiginkona Cruise, Katie Holmes, þátt í dansatriðinu sem vakti mikla lukku.
En þau voru ekki þau einu sem dönsuðu dátt í veislunni því David og Victoria fóru varla af dansgólfinu í veislunni. Var sérstaklega tekið eftir því hve ástfangin Beckham-hjónin virtust vera.
Meðal gesta í veislunni voru Demi Moore og Ashton Kutcher, Bruce Willis, Jim Carrey og unnusta hans Jenny McCartney og Eva Longoria. Will Smith og eiginkona hans Jada Pinkett Smith voru einnig í veislunni en þau skipulögðu boðið með vinahjónum sínum Tom Cruise og Katie Holmes,