Hjartaknúsarinn Brad Pitt og Gwyneth Paltrow munu leiða saman hesta sína í nýrri kvikmynd, Búrabrellur (Dirty Tricks). Líkt og alheimur veit voru stjörnurnar par í rúmlega þrjú ár, en áður léku þau saman í meistaraverkinu Á ystu nöf (Se7en). Þá framleiddi Pitt myndina Running With Scissors þar sem Paltrow lék snælduvitlausa dóttur geðlæknis nokkurs.
Nýja kvikmyndin fjallar um eftirköst Watergate-hneykslisins sögufræga og skartar einnig stórleikkonunum Annette Bening, Meryl Steep og Sharon Stone. Watergate-hneisan skók Bandaríkin í kjölfar þess að ljóstrað var upp um hleranir manna Nixons forseta í höfuðstöðvum demókrata.
Fyrirhugað er að tökur hefjist í desember.