Leikkonan Kirsten Dunst er ekki vinsælasti nágranninn í Islingtonhverfi í London. Hin 25 ára gamla kvikmyndastjarna flutti inn í 2 milljón punda hús í Islington á meðan hún leikur í myndinni Hvernig skal missa vini og útiloka fólk.
Nágrannar hennar kvarta sáran undan háværum partýum langt fram eftir nótt. Þrjár fjölskyldur hafa lagt fram kvörtun við hverfisráð Islington. Kirsten eyðir kvöldunum á hverfiskránni en þegar lokar býður hún öllum kráargestum í eftirpartý. Kirsten býr í húsinu ásamt kærasta sínum, rokkaranum Johnny Borell.