Undarlegur matur á Íslandi

Andrew Zimmern, var á Íslandi nú á dögunum til að kynna sér undarlegan mat þjóðarinnar fyrir sjónvarpsþáttinn "Bizarre food" sem hann stýrir á Discovery-sjónvarpsstöðinni. Og hann var ekki nískur á lofið þegar kom að íslenskri matargerð, er blaðamaður spjallaði við hann á hinum rammíslenska Sægreifa þar sem eigandinn Kjartan Halldórsson, bauð upp á hvalkjöt eða "Moby Dick" á spjóti eins og hann kallaði það.

"Það hefur verið frábært hérna, ég er búinn að borða slátur, hákarl og lunda. Ég hef borðað á sumum bestu veitingastöðum Reykjavíkur, Vox og hjá Sigga Hall og ég hef helling að segja um þessa nýtísku veitingastaði landsins. Ég er gjörsamlega ástfanginn af Íslandi," sagði Zimmern, sem er menntaður kokkur og hefur starfað sem yfirkokkur eða ráðgjafi við marga fræga veitingastaði í New York, Minneapolis og víðar.

Aðspurður hvað hefði vakið mesta athygli hans í heimsókninni sagði Zimmern það hafa komið sér á óvart hve mikil gæði hráefnisins væru.

Sjá nánar í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir miklar kröfur til sjálfs þín og annarra og setur sjálfum þér oft ströng skilyrði. Þú þrífst af skoðanaskiptum við starfsfélaga þína og leggur um leið þitt til þeirra mála.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnar Jónasson
2
Harry Whittaker og Lucinda Riley
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Carin Gerhardsen
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir miklar kröfur til sjálfs þín og annarra og setur sjálfum þér oft ströng skilyrði. Þú þrífst af skoðanaskiptum við starfsfélaga þína og leggur um leið þitt til þeirra mála.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnar Jónasson
2
Harry Whittaker og Lucinda Riley
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Jojo Moyes
5
Carin Gerhardsen