Yfirþyrmandi löngun í sælgæti virðist hafa komið yfir konu nokkra í Maryland í Bandaríkjunum en hún braust inn í sælgætisverslun kvöld eitt og fyllti tösku og alla vasa af sætindum. Þegar konan kom skömmu síðar inn á hótel með allt sælgætið fóru lögreglumenn á stjá og sáu að brotist hafði verið inn í sælgætisverslunina. Konan var handtekin og ákærð fyrir innbrot.