Steini Díva fór með sigur af hólmi í árlegri dragkeppni Íslands, sem haldin var í loftkastalanum í gærkvöldi. Þetta var í 10. sinn sem keppnin var haldin og undanfarin tvö ár hefur Steini Díva lent í öðru sæti en nú hreppti hann titilinn dragdrottning Íslands.
Keppnin þjófstartaði Hinsegin dögum, sem hefjast með formlegum í dag kl. 12 á Q-bar í Ingólfsstræti.