Læknar ítalska óperusöngvarann Luciano Pavarotti eru mjög jákvæðir, að sögn eiginkonu söngvarans. „Hann er rólegur, hann talar og grínast. Læknarnir eru mjög jákvæðir,“ sagði Nicoletta Mantovani.
Pavarotti, sem er 71 árs gamall, liggur á spítala í heimabæ sínum, Modena á Ítalíu, eftir að hafa verið lagður inn með hita. Talsmaður Pavarottis segir að stjarnan verði útskrifuð af spítalanum á næstu dögum. Hann gekkst undir skurðaðgerð til þess að fjarlægja æxli í brisi í júlí á síðasta ári.