Sigurvegari fyrstu X-Factors keppninnar á Íslandi, Jógvan Hanson, fær ekki gæfulega einkunn í færeyska dagblaðinu Dimmalætting fyrir tónleika sem Jógvan hélt á Sumarfestivalurin í Færeyjum og fram fór á dögunum í ofsaveðri.
Gagnrýnandi hrósar að vísu hljómsveitinni sem tróð upp með Jógvani en segir að X-Factor stjarnan hefði boðið áhorfendum upp á karakterlaust lúxus-karókí.