Brad Pitt var kallaður til að sinna borgarlegri skyldu sinni við kviðdóm í Los Angeles. Leikarinn þurfti á endanum ekki að mæta þar sem málinu var vísað frá. Pitt var fyrirskipað að mæta eftir að hafa áður verið veittur frestur vegna vinnu. Í þetta sinn var þess hins vegar krafist af honum að hann mætti, annars hefði hann sýnt réttinum óvirðingu, sem varðar við lög.
Pitt mætti á bíl með einkabílstjóra og fór strax inn í einkaherbergi í dómshúsinu, viku áður en réttarhöldin áttu að hefjast. Talsmenn leikarans segja hann hafa reynt venjubundnar leiðir til þess að fá enn einn frestinn.