Greta Mjöll er þessa dagana að reyna að finna út úr því hvaða teiknimyndapersónu hún líkist mest. „Ég var að spila við Þór KA á Kópavogsvelli síðasta miðvikudag þegar ég fékk aldeilis högg á andlitið og nefbrotnaði," segir hún.
„Mér er illt alveg upp í augabrún, en bólgan er að hjaðna og marið kemur fljótlega fram." Greta Mjöll segir nefbrot gríðarlega sársaukafullt þó auðvitað hafi verið um algert óviljaverk að ræða.
Nánar er rætt við Gretu Mjöll í Blaðinu í dag.