Angelina Jolie gaf lesbískt kynlíf, sem og margvísleg afbrigðileg rúmærsl, upp á bátinn þegar hún féll fyrir Brad nokkrum Pitt.
Leikkonan hefur viðurkennt að hafa tekið þátt í margs konar ærslum í bólinu, og reynt „sadómasó"-leiki; hins vegar kveðst hún hafa skilið allar hinar villimannlegu hneigðir eftir í fortíðinni.
„Ég hef aldrei reynt að dylja tvíkynhneigð mína," segir hún, „en síðan ég hóf að vera með Brad rúmast slíkt ekki lengur í lífi mínu."
Angelina átti áður í sambandi við fyrrum Calvin Klein-fyrirsætuna Jenny Shimizu. Að sögn kippir Brad sér þó ekki neitt upp við hina skrautlegu ástarsögu spúsu sinnar. Angelina kveður hann treysta sér fullkomlega og veita henni fullt leyfi til að „sósíalisera" með hverjum sem er. Þá vitum við það.