Travolta viðkvæmur fyrir sól

John Travolta skýlir George W. Bush Bandaríkjaforseta fyrir regni nýlega.
John Travolta skýlir George W. Bush Bandaríkjaforseta fyrir regni nýlega.

John Travolta lætur bera fyrir sig sérútbúna sólhlíf svo að geislar sunnu fái ekki sleikt húð hans.

Stórstirnið vinnur nú að gerð myndarinnar Gömlu brýnin (Old Dogs), en í henni leikur hann aðalhlutverk ásamt Robin Williams. Stóðu tökur nýlega yfir við pylsustand nokkurn, og var sérstakur drengur fenginn til að skýla gömlu dansstjörnunni fyrir sólinni. Fór vel á með hlífðardreng og Travolta, en Robin fagnaði hins vegar sjóðandi sólinni, og gleypti geisla hennar áfergjulega.

Myndin sem þeir félagar leika saman í fjallar annars um tvo vinnu- og bissnessfélaga sem komast í hann krappan þegar undarleg atburðarás verður til þess að sjö ára tvíburar koma róti á líf þeirra. Stendur til að frumsýna verkið á næsta ári.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Að afla sér tekna merkir líklega að maður þurfi að leggja á sig það sama og margir aðrir, en með sínum einstaka hætti. Peningamálin ættu að komast í eðlilegt horf á næstunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnar Jónasson
2
Harry Whittaker og Lucinda Riley
3
Jojo Moyes
4
Sólveig Pálsdóttir
5
Carin Gerhardsen
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Að afla sér tekna merkir líklega að maður þurfi að leggja á sig það sama og margir aðrir, en með sínum einstaka hætti. Peningamálin ættu að komast í eðlilegt horf á næstunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnar Jónasson
2
Harry Whittaker og Lucinda Riley
3
Jojo Moyes
4
Sólveig Pálsdóttir
5
Carin Gerhardsen