Britney Spears þráir að endurvekja vináttu hennar og Parisar Hilton en þær hafa ekki talast við í einhvern tíma. Þær urðu mestu mátar eftir að Spears sótti um skilnað við Kevin Federline á síðasta ári og voru saman á galeiðunni á hverju kvöldi í einhvern tíma.
Samkvæmt heimildarmanni Life and Style tímaritsins á Britney sér enga ósk heitari heldur en fara út á lífið með Paris en því miður þá svarar Paris ekki símtölum hennar.