Viktoría Beckham mun leika feita brúðarmær í „Ljótu Betty.“ Viktoría verður í gestahlutverki í einum þætti næsta vetur og leikur þar sjálfa sig akfeita eftir að hafa lagst í ruslfæði frá því hún flutti til Bandaríkjanna.
Viktoría hefur viðurkennt að það séu ekki beint leikhæfileikar sínir sem hafi leitt til þess að henni bauðst gestahlutverkið.
„Ég á að leika sjálfa mig, og ég verð í frábærum búningi þannig að ég þarf ekki að leika neitt,“ sagði hún.
Viktoría reynir nú hvað hún getur til að vekja á sér athygli vestanhafs, og vonast til að hlutverkið í Ljótu Betty skili árangri í þeirri baráttu.