Mikill fjöldi fólks er á tónleikum á Miklatúni en Landsbankinn og Rás 2 standa að tónleikunum í tilefni af Menningarnótt. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er gríðarlegur fjöldi í miðbænum og segist varðstjóri ekki muna eftir öðrum eins mannfjölda á Menningarnótt. Allt fari hins vegar vel fram. Þar skipti miklu máli að veðrið er gott og eins er dreifingin meiri en yfirleitt áður þar sem tónleikarnir eru haldnir á Miklatúni í ár en ekki niðri í miðbæ.
Klukkan 23 verður flugeldasýningin haldin en flugeldum verður skotið upp á hafi úti á móts við Sæbrautina. Að sögn lögreglu lýkur flugeldasýningunni væntanlega klukkan 23:20 og verða þá öll umferðarljós út úr miðborginni, á Sæbraut og Miklubraut sett á blikkandi gult nema á ljósunum á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrabrautar. Þeir sem fram komu á tónleikunum á Miklatúni í kvöld eru Sprengjuhöllin, Eivör (ásamt hljómsveit), Á Móti Sól, Megas & Senuþjófarnir og Mannakorn ásamt Ellen Kristjánsdóttur.