Breska söngkonan Amy Winehouse á ekki sjö dagana sæla þessa dagana. Hafa fjölmiðlar verið iðnir við að færa fréttir af áfengis- og eiturlyfjafíkn hennar en nú bætast við ásakanir fyrrum elskhuga, Johnny Headlock, um að hún sé kynlífsfíkill sem vilji láta berja sig.
Segir Johnny Headlock að hann hafi átt í villtu kynlífssambandi með söngkonunni á síðasta ári á sama tíma og hún var að hitta Alex Claire.
Í breska slúðurritinu News of the World segir Headlock að mikið hafi gengið á í ástarlífi þeirra. Segist hann hafa boðið henni kókaín ítrekað en hún hafi ávalt hafnað því.