Íslenska kvikmyndin Astrópía var frumsýnd í Sambíóunum í gærkvöldi og hefjast almennar sýningar á myndinni í dag. Myndin er ævintýramynd og fjallar um samkvæmisstúlkuna Hildi sem fer af illri nauðsyn að vinna í búð sem sérhæfir sig í hlutverkaleikjum og hasarblöðum. Áður en varir heillast hún af ævintýraheimi hlutverkaleikja og skilin milli hans og raunveruleikans verða óskýrari og ofurhetjan vaknar.
Gunnar B. Guðmundsson leikstýrir en aðalhlutverk leika Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Davíð Þór Jónsson. Af öðrum leikurum má nefna Höllu Vilhjálmsdóttur, Sveppa og Pétur Jóhann Sigfússon.