Leikkonan Lindsey Lohan hefur komist að samkomulagi við saksóknarann í Beverly Hills í Kaliforníu í Bandaríkjunum um að eyða einum degi í fangelsi, og vinna í tíu daga að samfélagsstörfum auk þess sem hún skuldbindur sig til að ljúka meðferð við fíkn sinni. Lohan var formlega ákærð fyrr í dag fyrir ölvunarakstur og að vera undir áhrifum lyfja.
Danette Meyers, saksóknarinn í málinu segir að Lohan hafi fengið sömu meðferð og hver annar sem hefur komið sér í slíkt klandur.